Er það 40 þús kall fyrir löndun eða?

Þú færð peningana í löndun!!

09.01.2008 13:47:41 / londun

nýtt "blogg"


Nokkur fyndin video:

BABY DONT HURT ME NO MORE !!

http://www.youtube.com/watch?v=n-BM6KdVFAI

Fótbolta video

http://www.youtube.com/watch?v=QW2uT5LNcf4

Arnold að taka tjúttið

http://www.youtube.com/watch?v=9bRUsEbfyYQ


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 20:41:12 / londun

Fundur endurtekinn. .

Afsakið töfina sem hefur gengið á. . margt hefur gerst siðan síðast!.. fangelsisvist og læti! 

Já, fundinum þurfti að slíta eftir hávaða rifrildi og stórslagsmála á milli Löndunarmanna og stjórnarmenn blog.central. .

Þurfti að kalla út sérsveitina og allt heila klabbið til að stöðva þetta. .!

Fundurinn verður endurtekinn núna um verslunarmannahelgina á þjóðhátíð í eyjum. .
Fundurinn verður haldinn á laugardaginn um versló og verður þetta því miður alveg lokaður fundur. .

Vegna þessa mikilla átaka sem gengu á síðasta fundi verður mjög hörð gæsla núna á fundinum á laugardaginn n.k. .

Og. . Vonandi kemur sjóðheitt blogg á mánudaginn eftir verslunarmannahelgina, og þar verður sagt frá öllu sem gerðist á fundinum og svo fáið þið kannski að heyra frá einhverju skemmtilegu sem mun gerast á þjóðhátíð næstkomandi helgi;)

En allavega byðjum við löndunarmenn að heylsa í bili, við erum að fara til eyja á morgunn, fimmtudag um hádegi. . og við ætlum ekki að vera edrú;)

Kv, Svenni Már. . Svona rakvél sem maður rakar punginn á sér með!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 14:20:36 / londun

Löndun að koma saman aftur efir örstutta pásu?

Góðann og blessaðan daginn!! Við Kallarnir í löndun erum að hugsa um að skrifa undir nýjan samning við blog.central. .!

Eins og flestir vita þá framlengdum við ekki samningin við blog.central síðast vegna þess hversu of lág laun við fengum fyrir okkar skriftir á þessari frábæru síðu..!
En blog.central gerði sér lítið fyrir og hringdi í löndunarmann nr 1 (Sveina) og bauð okkur hærri laun ef við færum að hefjast handa á ný við að blogga einhverja vitleysu á þessa síðu.. Því þeir voru farnir að óttast um að blog.central væri að fara á hausinn eftir að við neituðum að framlengja okkar fyrri samning!
Sveini tók alveg ágætlega í þetta (enda ekki einhverjir smáaurar sem er verið að tala um) og ákvað að skella á þráðinn til félaga sinna í löndun... og þeir vildu að við tækjum 9 klukkustunda fund með frstjóra og forseta blog.central fyrirtækisins..

sá fundur verður haldin í skipasmíðastöðinni á þriðjudaginn n.k.. semsagt í kvöld, og hefst hann með öllu móti kl 20:00. . og öllum er kleift að mæta.. A.T.H. að þetta er opinn fundur!

Allir að mæta og fylgjast með hvernig löndunarmálin fara að þróast á næstkomandi mánuðum..!!

A.T.H. Nýrri skoðannakönnun hefur verið fleygt hérna inn!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 10:42:52 / londun

algjör dóni

ætlaði bara að koma blogginu hans Fannars neðar á þessa helvítis síðu sem stofnendurnir sjá sér ekki fært um að skrifa á, hvað þá líta við á henni!.. Reyndar hefur Sveinbjörn þá afsökun að búið er að leigja eða öllu heldur gefa hann út til aðstoðar við flutninga... þið bara bjallið í kappann ef þið eruð að flytja...:)

Einhverjir hyggja á drykkju í kvöld í tilefni af fríinu sem gengur í garð á morgun og stendur alveg til dagsins eftir.. Gárungarnir telja að Löndunareigendur hafi splæst í einn kassa saman en það er alveg óstaðfest og ósannað.. Fátt hef ég annað að segja nema bara hvetja Sveina og Eina til að blogga eins og einu sinni eftir Krist..

Heitar kveðjur úr Sögu 313 frá Höllu Marín... Bið ykkur vel að lifa! Ingvar Bear

» 11 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 18:25:28 / londun

ætlaru að BOMBA mér heim

Jæja verð ég þá ekki að henda inn einu bloggi um allt og ekkert  !

samt verð ég að segja að mér finnst Eini og Sveini freeeekar slakir við að blogga !

En ég vill minna ykkur á það að eftir tæpar 2 vikur held ég þá styttist í það að kallinn nálgist þrítugsaldurinn takk fyrir kærlega og ekki verður það ónýtt skal ég ykkur segja, mér skildist á Arnari V. að ég ætti að drífa mig norður í páskafríinu og við  myndum  taka rölt í ríkið ;)
en ég meina menn hafa nú keypt í ríkinu án þess að vera orðnir 20 ;) við skulum bara taka MIG sem dæmi jéééahhh. bara að DJÉLLA ;) þetta var aðallega ætlað Eina og Sveina, en ég var svona að pæla hvort að ég ætti að halda uppá þennan merka áfanga að vera orðinn 20 en ég veit varla hvort að ég nenni því:S kallinn var að gæla við aðhalda það í borginni og þá á Hverfisbarnum, ég átti ágætis samræður við félaga minn og stórfrænda Gunnar Óla Sölvason með meiru og mér skilst að maður þurfi bara að kaupa kút sem að kostar ´þá 22,000 kall og svo er húsnæðið frítt, en mér finnst það svoltið dýrt þar sem að ég er fátækur námsmaður en fyrst að Gunnar Óli týmdi því þá er ég farinn að spurja sjálfan mig hvort að ég sé að verða NÍSKUR :O
en þá vill ég bjóða slatta mörgum svo að maður fái nú einhverja pakka en þar sem að ég á enga vini gæti það orðið erfitt !  en endilega látið mit vita ef að einhver vill vera vinur minn og þá vill ég fá STÓRAN pakka !! ekkert hálfkák takk fyrir !

Ég gæti kannski boðið sveina hann er að koma suður akkúrat 5 apríl ekki amarlegt það ! reyndar var hann að plana það og eins og við öll vitum er hann einn mesti planari landsins ! (plana þá meina ég skipuleggja), hann er búinn að plana það að fara að læra hárgreiðsluna fara til útlanda svo e-ð sé nefnt !

Eeen ég er að fara í fermingu núna 1 apríl til bróðir míns, já það vita kannski ekki margir það að ég á bróðir ótrúlegt en satt ! og ég fór svona að pæla hvað ég ætti að gefa kvikindinu í fermingargjöf þá hringir faðir minn í mig og spyr hvort að ég vilji ekki bara vera með þeim í gjöf, jújú segi ég hvað ætlið þið að gefa honum pening, nú segi ég hvað mikið 50.000 kall :O það er nú ekkert lítið á meðan gamli maðurinn gaf mér græjur sem voru ábyggilega keyptar á tilboði ! og hafa ekki kostað meira en 15.000 kall spurning um að það sé verið að gera upp á milli bræðra

en ég veit ekki hvort að ég ætti að hafa þetta eitthvað lengra, hér með skora ég á Eina eða Sveina aðhenda inn einu bloggi áður en að helgin skellur á

meira er það ekki í bili
Stein Tjúnd !

- Fannar Þór

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 11:52:32 / londun

Dvergur

jæja, ákvað að reyna að fá hin ógeðin til að skella inn eins og einu bloggi og taka af skarið og gá hvort það opni ekki eins og 10-15 flóðgáttir!.. Sveini litli var með ælupest í síðustu viku og ældi fallega á herbergisgólfið hjá sér... spurði síðan pabba sinn "ertu ekki stoltur af mér?", "stoltur?, afhverju ætti ég að vera það?" svaraði Steini píp alveg blísperrtur... "Nú, ég miðaði framhjá öllum snúrunum!"

Ægilegt krútt hann Sveinubjörn ójáójáójá.. E-r pjöllur eru að reyna að diffra strákinn í að fara á sálina um helgina en það er voðalega fjarlægur draumur akkúrat þessa stundina... það er ekki nema að Halla Marín sýni hnullana og þá er svosem alveg geim... Hún er að vísu ekkert að reyna að fá mig í sjallann en hún má alveg leggja málstaðnum lið

Ég og Guðmundur Óli hentum 45 kúlum hvor í góðgerðarmál í gær og erum því pottþétt á leið til Mekka Evrópu, með öðru nafni, Old Trafford þann 21.apríl næstkomandi...

Bergur og Bjarki tóku dúel í hádeginu í gær og fór Bergurinn með sigur af hólmi, ægileg head shot hjá strákunum... Honum er einmitt farið að hlakka til sturtunnar eftir æfingu í dag, verða víst tvær nýjar slöngur til reynslu hjá þeim í dag og kannski e-ð meira...

Ég ætla samt ekkert að hafa þetta mikið lengra núna, læt þetta duga í bili og hvet hina gaurana til að henda inn einu og einu bloggi....

From the eastside
IngvarBear

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 19:33:00 / londun

asdgrt

jæja ætli ég verði ekki að henda inn einu bloggi hérna hafa það stutt og laggott Ég skellti mér í það í gær að kaupa afmælisgjöf vegna þess að mér var boðið í afmæli í gær, þetta var nú merkisafmæli þar sem að drengurinn er nú kominn á þrítugsaldurinn og þegar að menn eru orðnir þetta gamlir þá er lítið sem ekkert hægt að láta sér hlakka til neins, 17 ára færðu bílprófið, 18 verður sjálfráða og getur keypt tóbak og kemst sumstaðar inn á skemmtistaði og 20 þá máttu þetta allt saman og fara í ríkið og kemst inná alla staði nema kannski REX þar sem að ég held að það sé 25 ára aldurstakmark, er eitthvað meira sem maður getur látið sér hlakka til ? jú kannski að verða 67 ára og kominn á eftirlaun, en nóg um það, ég skellti mér í Adam&Evu og ákvað að gefa honum svona uppblásna dúkku, þegar að ég er búinn að vera þarna í smástund að skoða úrvalið tek ég eftir því að það kemur maður í eldri kantinum svona í kringum 70 aldurinn hlaupandi inní búðina og svo stuttu seinna kom konan hans á eftir honum, ég hélt að ég yrði ekki eldri þetta var sennilega 1 af því fyndnasta sem ég hafði séð, gömul hjón að versla í svona búð, ekki það að það sé eitthvað að því að gamalt fólk sé að ríða eða verlsa í svona búð, mér bara datt aldrei í hug að það myndi gera slíkt !

en ég held að ég hafi nú lítið annað segja, nenni ekkert að tjá mig um handboltann vegna þess að ég held að alir landsmenn sem eru með bloggsíður sjái alfarið um það,

ætla gefa eina eða sveina heiðurinn á að blogga um suðurferðina !

en eins og ég sagði þá ætlaði ég að hafa þetta bara stutt og laggott stei tjúnD !!


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 11:55:43 / londun

hvað á að gera í kvöld ? ég er að pæla i því að kýla í rúðu

lítið verið bloggað uppá síðkastið en ætli ég verði ekki að komameð 1 lélegt blogg hérna svona á  nýju ári.

Ég frétti það að norðan að synir steina bakara, þeir 2 elstu hafi ákveðið að láta stálin stinn mætast en það varð aldrei neitt úr því vegna þess að fólk var of upptekið við að stoppa þá og slösuðust þeir sem að reyndu að stoppa þetta ! Eini fékk gat á hausinn og blæddi ekkert eðlilega fékk ég að heyra, svo eru allir í bænum farnir að kýla í rúður vegna þess að það þykir svo töff eftir þetta kvöld skilst mér,heyrði það frá einum aðila þegar að ég spurði hann hvað hann ætlaði að gera í kvöld sagði aðilinn orðrétt, " ég ætla að kýla í gegnum rúðu, láta helvítið finna fyrir því " en ekki er þetta í fyrsta skipti minnir mig sem að þeir fara a slást, ef að mér er ekki að skjátlast var eitthvað svipað að ske um páskana að mig minnir og slasaðist þá enginn sem betur fer en hurðin hjá Abba fékk held ég að kenna á því !

en núna er skólinn byrjaður og allir að sjálfsögðu ánægðir með það, allir búnir að kaupa skólabækur !

en ég ætla ekki að hafa þetta lengra á nýju ári, spurning um að hinir bloggararnir komi með 1 stykki blogg..

kveð úr borginni Fannsi metró-tan


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:12:53 / londun

Gleiðileg Jól !!

Fyrir hönd okkar í löndun vill ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári þakka fyrir það liðna, hafið það gott í faðmi fjölskyldunnar

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 18:13:43 / londun

Ég átti einu sinni vin...

Hann hét fannar! hann heitir það nú samt örugglega ennþá en mér er bara alveg sama. Hann er svo ólaður niður þarna fyrir sunnan að hann má ekki einu sinni kíkja á sinn heimabæ og sína vini svona rétt yfir hátíðirnar. Eins og Jón Sigurjóns myndi segja, þvílíkur væll!!



En það er fátt að gera við því. Sveini við verðum þá bara tveir með thule í dós þessi jólin!



En já nóg komið af þessu skæli. Mætti halda að eli væri að skrifa þetta!;)



Sveini kallinn kom um seinustu helgi og var að sjálfsögðu varla kominn í bæinn þegar að hann var búinn að opna bjór, eins og sönnum landara sæmir! Við skelltum okkur á baukinn en það var nú frekar stutt stopp! En eitthvað frétti maður af skúbbinu samt sem áður og ætli það sé ekki best að segja frá því helsta svona í tilefni jólana.



Einhver strákur sem var varla í topp 100 í idolinu var að spila og að sjálfsögðu sýndu húsvískar meyjar gestrisni sína og létu drenginn ekki sofa einan! Ein stúlka hefur víst ákveðið að flytja suður eftir áramót tilað geta verið með stráknum!:o



Sveinbjörn Lund var ansi nálægt því að verða maður helgarinnar þar sem að hann óð í kvenfólki sem var allavega tvöfalt eldra en hann! Það er náttúrulega bara gott mál hjá honum.



Birgitta hefur líka sennilega legið á bakinu með lappirnar í sundur mest alla helgina ef ég þekki hana rétt!



Matti Leifs sonur Gulla á bílaleigunni stendur alltaf fyrir sínu, segi ekki meir;)





Jæja þetta er gott í bili!



P.S. Vill minna fólk á að stilla á skjáeinn á fimmtudagskvöldum kl 20:30. Venni Páer er sennilega fyndnasti maður í heimi!

» 42 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 01:40:04 / londun

Kallinn kominn í bann!..

Sæææl veriði! Langaði bara aðeins að segja frá því að ég kíkti á Húsó á Laugardagskvöldið... Kom klukkan 23:00 að staðartíma eftir erfiðan löndunardag... fór að sjálfsögðu beint á barinn en staldraði nú ekki lengi við skal ég segja ykkur!.. Kallinn var þéttur á því og lét henda sér út!!javascript:editor.insertHTML(':lol:'); Ég gerði nú kannski ekkert voðalega hluti af mér en ég hefndi mín samt rosalega þegar ég sparkaði í hurðina og Reynir dyravörður bombaði mér í pallinn... HAHA sá fékk sko að finna fyrir því!! Kveðja, löndunarmaður nr.1 - Sveini PS. Megið alveg sleppa að lesa færsluna hans Fanna... húner ömurleg!... Heyrði því líka fleygt að einar væri orðinn bílatæðavörður heima! Hafsteinn sér um Shell planið og einar Essó planið!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 18:17:03 / londun

GODR !!!

Það var kvartað við mig yfir því hvað ég hefði bloggað lítið á þessa síðu, og sökum þess hvað ég er eitthvað voðalega hugmynda snauður rakst ég á þennan pistil þar sem að greinilega mjög bitur drengur hefur skrifa þetta, greinilega alfaið á móti öllu sem kallast hreyfing !

Ef ég mætti bara segja að ein manneskja í öllum heiminum væri fífl, væri sú manneskja mjög líklega íþróttakennari. Akkúrat núna stendur yfir svokölluð "heilsuvika" í skólanum mínum, þar sem að hinn og þessi íþróttakennarinn stendur upp á sviðið og hvetur okkur til að hreyfa okkur meira eða borða mat sem er minna en 70% fita eða eitthvað álíka fáránlegt. Heimsku Fífl. Ef ykkur finnst hreyfing virkilega svona frábær, þá væri ég alveg til í að sjá ykkur íþróttafíflin taka eina vanmetna æfingu: Hoppið upp í rassgötin á ykkur.

Haldiði virkilega að fólk sem vill ekki tileinka sér þennan svokallaðan "heilsulífstíl" ykkar af fúsum og frjálsum vilja eigi eftir að gera það því það hafi verið svo gjörsamlega heillað upp úr skónum af heilsuvikunni í Borgarholtsskóla? Öllum er drullusama um eitthvað helvítis reipitog sem þið eruð að skipuleggja, nema kannski kennurunum og sleikjunum þeirra, þannig að væri ekki best að stunda allan þennan sauruga hommagang inn á kennarastofu, eða bara einhvers staðar þar sem að ég þarf ekki að hlusta ykkur stynja og hrína meðan þið tosið í eitthvað ógeðslegt kúamykjureipi?

Og þetta próteindrykkja boozt-bar mataræði ykkar er nógu viðurstyggilegt fyrir, án þess að þið séuð kúkandi því upp í mig. ALLT sem maður borðar er óhollt, sama hvernig litið er á það. Epli mynda sýru og geta leitt til magasára. Mjólk er fitandi og veldur slímmyndun í hálsi. Jafnvel þetta guðdómlega vatn ykkar þembir fólk upp og veldur ristilkrampa. Ef ég ætla að gleypa eitthvað af viðbjóðnum sem boðið er upp á í matvöruverslunum, vil ég að það sé alla vegana gott á bragðið. Viljiði vita hvað ég borðaði í morgunmat? Haldið þessu kjaftæði áfram aðeins lengur og ég skal sýna ykkur það.

Og hvað er málið með allt þetta skokk? Auka þol? Til hvers? Ég veit að þið keyrið öll í skólann, þannig þið þurfið ekki mikið þol í það, og ef það væri einhvern tímann gerð árás á Ísland, þá er komin 21. öldin, þannig að það væri ekki ráðist á okkur með einhverju sem þið gætuð hlaupið í burtu frá. Mér skilst að kjarnorkusprenging þenjist út á rétt undir hljóðhraða, gangi þér vel að hlaupa frá því.

Og ef þetta er útaf því að þið viljið lifa lengur, hafi þið bara sannað það að þið séuð hrædd við að deyja. Vitiði hvað? Ég líka, en þú sérð mig ekki sóandi þeim stutta tíma sem ég hef á jörðinni með því skokka fimm daga vikunnar. Meiri kynlíf, meiri áfengi og meiri eiturlyf fyrir mig, takk. Þegar þeir finna líkið mitt, er eins gott að þeir komi að sjötugum manni sem dó í bruna stuttu eftir að fullnægja átta konum sem hann hitti þegar hann var blindfullur í æðislegu partíi, og sofnaði síðan með jónu í hendinni, frekar en hundrað ára slefandi vitleysing sem fékk hjartaáfall meðan hann var að skokka, þrjátíu árum eftir að kynkalda eiginkona hans dó úr leiðindum.

Brennið öll í helvíti, íþrótta-aumingjar. Ég gæti næstum því vorkennt ykkur þegar ég sé hversu fáum er ekki drullusama um vitleysuna sem kemur upp úr ykkur. Næstum því.

kv. Fannsi klettur !!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 19:43:17 / londun

One Tree Hill RULES!!

Var að enda við að horfa á nýjasta þáttinn í On Tree Hill seríu 4 . . Ekkert eðlilega góður þáttur, þetta er held ég bara besti eða næstbesti þátturinn í bestu þáttaröð sem hefur verið gerð. . ! Þetta var semsagt 9. þátturinn í seríu 4...
Eins og nokkrir vita þá var ég með OC á heilanum þegar það var að byrja hér á landi, og ég hélt því meira að segja fram síðasta vetur að One Tree Hill væru hndleiðinlegir þættir og þeir væru bara að reyna að apa eftir OC... En staðan í dag er þannig að OC er bara kúkur við hliðina á One Tree Hill. . ;)
Aldrei neitt að gerast lengur í OC, eftir að Marissa dó er þetta bara orðið hundleiðinlegt og ekkert að gerast í þessu. . !!

Ég var að pæla í því að koma til Húsavíkur um helgina, er búinn að vera í fríi síðustu 2 daga vegna brælu og leiðilegs veður/s... En nei þá var mér sagt í dag að það yrði vinna í fyrramálið kl 8...
Aldrei er hægt að vera bræla og ógeð yfir helgar, alltaf þarf þetta að vera í miðri viku og vera svo komið í lag þegar helgin er loksins að fara að byrja. . !!
Ég kemst kannski samt annað kvöld, en enginn veit neitt..!

Ég er ekki búinn að koma í dálítinn tíma og það fynnst mér orðið frekar súrt. . Langar soldið að kíkja í bæinn;)
En það kemur að því að maður komi. . Hlakkar td ekkert smá til yfir jólin... fyllerí og læti. . semsagt fyrsta fylleríið mitt í rúman mánuð sem ég er ekki sáttur við.. frekar dapurlegt;/

Rakst á Þjóðhátíðarlag 2006 rétt áðan á netinu og hlustaði aðeins á það, og vá maður.. djöfull langar manni aftur til Eyja... Það voru ekkert eðlilegar þessar mynningar sem maður fékk yfir þessari hlustun, "Brekkubíllinn" o.m.f.l... bara snilld!!

Og auðvitað fer maður aftur á næsta ári;)
Hverjir ætla til Eyja 2007. . ??

Hlustið fyrst á þetta lag og svarið svo;)
Lagið er hér fyrir neðan. . ;)

http://www.xtreme.is/ibv.is/dalur/skrar/1153570294.mp3

By the way, Fanni og Eini. . ég fer að breyta passwordinu ef þið drullist ekki til að fara að blogga . .;)

Svenni Már - Landari nr. 1. .


» 15 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 00:52:55 / londun

Elska þig mest...:*

Kvöldið. .

Maður hefur lítið getað bloggað undanfarið vegna mikillar vinnu, og hvað þýðir það? jú maður er að græða, alltaf að græða!
Maður byrjar daginn alltaf klukkan 8 að morgni til 8 á kvöldin, og kannski eins og margir hafa komist að þá er ekkert voðalega mikið að gera hjá mér í vinnunni... þessir MSN nördar ættu kannski að vita allt um það, og þegar ég segi MSN nörd þá er ég aðallega að tala um fólk sem hangir á MSN allann daginn, og ég held að Fannar Þór sem mesti MSN nörd sem skriðið hefur út. .!

En það er eitt sem ég verð að koma að hérna... mér þykir eitt mjög asnalegt í sambandi við stelpur, og ég bara þoli ekkki að lesa komment á bloggsíðum hjá Stelpum, sérstaklega hjá Höllu og Sveinu, það er það að þegar það er verið að skrifa í komment "Ég elska þig ýkt, sakna þín agalega" og það kemur ekki bara einu sinni á dag... og ég tala nú ekki um þegar það er "æjj ástin mín sakna þín, heh ég er að tala við þig í síma á meðan ég er að skrifa þetta" eða "ég sit við hliðina á þér og þú sérð hvað ég er að skrifa"
Þessi komment fynnst mér bara svo tilgangslaus og ömurlega leiðinlegt að lesa!

já.. það er voðalega lítið sem ég get sagt...

Eini kallinn er bara á haugafyllerí í Danmörku núna... og ég talaði við hann í fyrrakvöld og hann LOFAÐI mér að senda mér SMS um leið og hann væri kominn til Danmerkur, en ekkert SMS hef ég fengið en!!... Eini, ég sakna þín:* ég get ekki beðið eftir að hitta þig:* ooo Eini elskjú;* missjú:*

Rétt up hönd sem fynnst Fannar hafa staðnað í blogginu eftir að hann tók sig til og gekk í raðir landara?

En allavega, ég held að ég nenni ekkert að vera að rita eitthvað meira hérna, en vill benda á það að það er komin ný skoðannakönnun..

Og Karo ógeð, þú ert komin í linka og ef þú segir ekki fyrirgefðu þá ferðu þaðan út;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 00:13:57 / londun

Maður kann ekkert að blogga!!

Já góða kvöldið... eins og stendur hér í fyrirsögninni sjáið þið að ég kann ekkert að blogga, en maður reynir..!!

Ég er búinn að taka eftir gríðarmiklum kommentum eftir síðasta blogg fannars um innflytjanda málið... Fannar er bara grenilega ekkert nógu merkilegur fyrir ykkur þarna úti!

Eins og þið vitið þá bý ég hérna á Vopnafirði og svona.. og hef yfirleitt lítið að gera fyrir utan vinnnuna, og þess vegna hefur maður komið til Húsavíkur nánast hverja einustu helgi eftir að maður flutti, til að hitta fjölskyldu og vini... en Svo þegar maður kemur ekki þá fer það fólk að grenja og nánast hótar manni lífláti.!
En afhverju í ósköpunum getur það ekki komið allavega eina helgi hingað?

það var einn búinn að lofa mér allavega 2svar að hann myndi koma hingað... en nei svo á daginn fyr en hann ætlaði að koma þá sagðist hann alltaf búinn að lofa sér í rjúpur.. alger aumingi!!

En það er samt vonandi hópur að koma núna 1.des nk.! En sá hópur ætlaði að koma síðustu helgi en komu ekki... gátu ekki drullast til að skafa af sér helvítis brjóstin og komið þótt það hafi verið spáð 1 m/sek og sól og bliðu!!;)


Fjögurra klukkustunda kynlífsmyndband af Britney Spears
Ótti ríkir í herbúðum Britney Spears eftir að upplýst var að eiginmaður hennar Kevin Federline, hefur undir höndum fjögurra klukkustunda myndband af þeim hjónum í villtum ástarleikjum.

Breska blaðið News of The World segir að Federline hafi þegar verið boðnir milljarðar króna fyrir myndbandið. Vinur Federlines segir að myndirnar hafi verið teknar á hveitibrauðsdögum hjónanna þegar þau gátu varla sleppt hendinni hvort af öðru. Þau hafi ekkert annað gert en elskast, og tefla stöku skák. Þau hafi hreinlega verið óseðjandi.

Britney er sögð óttast að myndbandið eyðileggi heilbrigða ímynd sína, ef það verði gert opinbert. Hún eigi úr vöndu að ráða í samningum við Federline, sem heimtar af henni tvo milljarða króna og forræði yfir börnum þeirra tveimur.


Ég meina, hver vill ekki að þetta myndband komi á netið?
Ég væri alveg til í að sjá þetta... ekki nema 4 klst;)

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
�?jóðhátíð í Eyjum 2008
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1288 dögum